HAUSTBREKKUR
Ég hefi einatt sótt yrkisefni í nánasta umhverfi mitt. Þessi málverk hér eru sótt í það verk, eða myndröð, sem ég hefi kallað “Haustbrekkur” . Fyrir tveimur árum sýndi ég ykkur í Ketilhúsinu fyrsta kafla þessa verks og hét “Málverk um Búðargil og brekkurnar”.og sagðist hafa leitað fanga eða gengið til litgrasa í brekkurnar upp af Fjörunni. Um þau verk sagði Þóra Þórisdóttir, myndlistargagnrýnandi Morgunblaðsins:....” Útfærslan á brekkunum gefur tilfinningu fyrir gegnheilli andlegri og upphafinni skynjun á landinu sem er allt að því líkamleg”.... og einnig “ ....aðal verkanna er einmitt sú persónulega nálgun sem í þeim býr, sú sálræna dýpt sem birtist í síendurteknu samtali listamannsins við átthagabrekkur sem voru og eru.”
Verkin á þessari sýningu eru sem sagt framhald þeirra verka, hluti af stærri heild, og sækja blæbrigði í litskrúð brekknanna og minnir á haustið eða gróður sem er að syngja sitt síðasta með trega, flúri eða fagurgala. Líf í lækkandi sól.
Ef mér auðnast það eftirlæti að fá einhvern tíma aðgang að víðari veggjum ætla ég að sýna ykkur myndröðina alla um brekkurnar. Ekki er sýnt það verði á næstunni.

Kristinn G. Jóhannsson (1936)

nam myndlist á Akureyri,í Reykjavík og í Edinburgh College of Art, Skotlandi.
Hann efndi til fyrstu sýningar sinnar á Akureyri 1954 en sýndi fyrst í Reykjavík í Bogasal Þjóðminjasafnsins 1962 og sama ár tók hann í fyrsta sinn þátt í Haustsýningu Fím í Listamannaskálanum. Hefur síðan verið virkur á sýningavettvangi.
Kristinn varð stúdent frá MA fyrir rúmri hálfri öld og lauk kennaraprófi 1962 og starfaði síðan við kennslu og skólastjórn á Patreksfirði, Ólafsfirði og Akureyri í tæpa fjóra áratugi.
Hann hefur nú velt af sér opinberum reiðingi fyrir nokkru og hefur vinnustofur á Akureyri þar sem hann starfar að list sinni , eða eins og hann segir sjálfur:”Þar er ég að etja saman litum, einkum litbrigðum jarðarinnar, og læt á reyna hvort nægi til málverks.”
Kristinn hefur gert vatnslitamyndir í nýjar útgáfur af sögum Jóns Sveinssonar, Nonna, og einnig í þjóðsögur s.s. Búkollu og Gilitrutt auk teikninga í fjölda annarra bóka.