Andlit

 

Að baki verkanna, sem unnin eru í janúar 2008, er rúmlega tíu ára stúdía af þessum andlitum. Útfærð í mismunandi tækni og oft fleiri málverk af hverri mynd. Andlitin eru oftast unnin eftir ljósmyndum en svo breytt að þau eru vart þekkjanleg og eiga að tjá það sem ljósmyndin getur ekki tjáð. Ég reyni því að afmá það prívata frá ljósmyndinni og gera málverkin að almennum myndum sem áhorfandinn á að geta fundið sig í, eða þekkt þá karektera, skap og tilfinningar sem myndirnar tjá.
Ég starfa náið með fólki, í minni launavinnu, og við að reyna að lagfæra líf fólks sem vill breyta sér og lífi sínu og geri ráð fyrir að sú reynsla skyli sér í myndunum í aukinni nálægð. Í minni myndlist vinn ég alfarið útfrá einstaklingnum, síðan ég flutti til Íslands eftir 18 ára búsetu erlendis.
Ég vinn við portrettgerðarmyndlist og nota ýmsa miðla til þess og oft persónulýsingar stjörnukorta, mála því ekki bara fólk heldur skrifa líka um skapgerð þess og orku. Þessi sýning samanstendur bara af olíumálverkum, það passaði best í þetta rými. Þrennt er það sem ég vinn með í minni myndlist; litur, andlit og handskrifaður texti, og laga þetta þrennt að því rými sem ég sýni í. Handskrifaði textinn átti ekki við á þessari sýningu.
Á námsárunum í Hollandi vann ég mest með abstraktlitafleti og áferð. Notaði litinn ýmist vatnsþunnan eða blandaði í hann ýmsum efnum og hafði hann húðþykkan. Árið eftir framhaldsnámið vann ég vetrarlangt við efnarannsóknir á vísindastofu efnafræðings sem vann við Jan van Eyck Akademíuna og við Ritvelt Akademíuna í Amsterdam. Mest var ég að rannsaka þykkan lit og það er kannski helsta ástæðan fyrir því að þessi litur er svo þunnur á myndunum, segi ekki meira um það.
Önnur ástæða er að ég vann sem safnakennari að kenna fólki að vatnslita vetrarlangt á Norræna Vatnslitasafninu norðan við Gautaborg. Mér finnst því spennandi að rannsaka vatnslitaáferð og tækni í olíulit og á dúk.

 

Guðrún Pálína jan. 2008

 

21.10 - 12.11 200